Hæg suðlæg eða breytileg átt í dag. Skýjað með köflum og þurrt að kalla á vestanverðu landinu. Súld eða þokuloft austanlands. Hiti víða 5 til 10 stig yfir daginn.
Sunnan 3-10 m/s á morgun og dálitlir skúrir eða slydduél, en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Kólnar lítillega í veðri.
Spá gerð 04.05.2024 05:01
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
2,7 | 03. maí 08:57:07 | Yfirfarinn | 4,2 km VSV af Eldeyjardrangi á Rneshr. |
2,2 | 02. maí 16:54:49 | Yfirfarinn | 18,4 km A af Eldeyjarboða á Rneshr. |
2,0 | 03. maí 11:11:37 | Yfirfarinn | 5,1 km VSV af Eldeyjardrangi á Rneshr. |
Eldgos á Sundhnúksgígaröðinni
Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og líkt og síðan 5. apríl er einn gígur, skammt austan við Sundhnúk, virkur. Hraun rennur stutta vegalend til suðurs frá gígnum í opinni hrauná en lengra í lokuðum rásum.
Sjá nánar í frétt á forsíðu
Upplýsingar um gasdreifingarspá má
sjá hér
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 04. maí 06:30
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Vegna bilunar höfum við þurft að slökkva á þjónustunni sem birtir gögn frá vatnamælistöðvum á kortinu. Hægt er að nota Rauntímavöktunarkerfi í staðinn
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 01. maí 08:07
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | lau. 04. maí | sun. 05. maí | mán. 06. maí |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
|||
Norðanverðir Vestfirðir
|
|||
Tröllaskagi utanverður
|
|||
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
|||
Austfirðir
|
Uppfært 2. maí kl. 12:15
Áfram mælist landris við Svartsengi og hefur hraðinn haldist nokkuð stöðugur allt frá því í byrjun apríl (sjá mynd hér að neðan). Fram kom í fréttum fyrr í vikunni að vísbendingar væru um að hægt hefði á því dagana á undan. Mælingar síðan þá sýna að hraðinn hefur haldist jafn ef horft er til síðustu vikna. Þrýstingur heldur því áfram að byggjast upp í kvikuhólfinu og líkur er á nýju kvikuhlaupi úr kvikuhólfinu undir Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina.
Lesa meira
Íslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.
Lesa meiraEvrópa er ekki undanskilin þegar kemur að afleiðingum loftslagsbreytinga. Hlýnun mælist hröðust í Evrópu, en hiti álfunnar hækkar tvöfalt á við hnattræna hlýnun. Árið 2023 mældist hiti í Evrópu 1,0 °C hærri en meðalhiti viðmiðunartímabilsins 1991-2020 og 2,6 °C hærri en fyrir iðnbyltingu. Ársmeðalhiti var yfir meðallagi í nær allri álfunni árið 2023, ef frá eru talin Skandinavía, Ísland og suðausturhluti Grænlands.
Lesa meiraÍ dag er
liðinn einn mánuður frá upphafi eldgossins sem nú er í gangi á
Sundhnúksgígaröðinni. Eldgosið, sem hófst að kvöldi 16. mars, er það fjórða frá
því að kvikusöfnun hófst undir Svartsengi í lok október 2023. Eldgosið
nú hefur staðið lengst allra eldgosanna á Sundhnúksgígaröðinni í þessari hrinu
eldgosa og næstlengst þeirra gosa sem hafa orðið á Reykjanesskaga síðan 2021. Einungis
fyrsta eldgosið í Fagradalsfjalli sem hófst í mars 2021 er lengra, en það stóð
yfir í um 6 mánuði.
Föstudagskvöldið 27. júlí 2018 rétt um sólarlag mátti sjá myndarlegan regnboga á Suðurlandi, meðal annars í Grímsnesi.
Svo regnbogi sjáist þarf regn að falla í einhverri fjarlægð frá áhorfanda auk þess sem það þarf að vera heiðskírt fyrir ofan og aftan áhorfandann og sólskin skíni bak hans. Regnbogi birtist alltaf andstæðis sólu og miðja hans er í mótsólarpunkti (miðdepli), sem er á sjóndeildarhringi við sólarupprás og sólarlag en annars fyrir neðan hann. Þess vegna er regnboginn því hærri sem sólinn er lægra á lofti.
Lesa meira